Karellen
news

Þorrablót

29. 01. 2024

Á Bóndadaginn héldum við okkar árlega þorrablót hérna í leikskólanum. Það er gamall og góður íslenskur siður sem við höfum gaman af að viðhalda. Allir gæddu sér á mat sem tengist Þorranum. Búið var að ræða um þennan mat á deildinni og allir voru spenntir að smakka. Dagana á undan voru börnin búin að útbúa þorrahjálm/þorrahatt. Dagurinn var skemmtilegur og allir glaðir með Þorrablótið.


© 2016 - 2024 Karellen