Þar sem Skyrjarmur kom færandi hendi í morgun og við svona alveg nýbúin að sjá alvöru skyrtunnu í Árbæjarsafninu langaði okkur til að smakka svona gamaldags skyr eins og hann vill helst fá. Við settum skyr í tvær skálar, vanilluskyr og óhrært skyr og svo var smakkað. Það kom krökkunum á óvart hvað skyrið sem Skyrjarmur gamli vill helst fá er gott. Kennararnir voru líka alveg steinhissa á hvurslags hreystimenni þessir krakkar eru að háma í sig eldsúrt skyr og biðja um meira.
Jú kannski svolítið súrt.