Í dag heimsóttum við eldri borgara í Ísafold. Við spjölluðum við heimilisfólkið og sungum nokkur jólalög. Heimsóknin heppnaðist mjög vel og börnin stóðu sig frábærlega, sungu hátt og skýrt, voru kurteis og prúð. Áður en við héldum heim á leið var okkur boðið upp á piparkökur og mandarínur, börnunum til mikillar gleði.
Börnunum leist alveg sérstaklega vel á stólana sem sem heimilisfólkið hafði og við höfum ákveðið að biðja Björgu um svona fína stóla... já og kannski líka svona rosalega stórt sjónvarp.