Karellen
news

Viðurkenning fyrir ;Raddir barna; verkefni

21. 11. 2025

Á Menntadaginn í byrjun nóvember voru leik- og grunnskólum Garðabæjar veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni sem unnin voru með börnunum.

Við í Lundabóli fengum viðurkenningu í flokknum nýbreytni, fagmennska og gæði fyrir verkefnið okkar um að efla Raddir barna í leikskólastarfinu. Verkefnið gengur út á að gefa börnum færi á að koma með sínar skoðanir á sem flestu og hlusta á börnin og efla þau í að hafa mikið um sitt námsumhverfi að segja.

Frábært verkefni sem þær Árdís Grétarsdóttir og Maricris De Luna hafa leitt undanfarin ár.

© 2016 - 2026 Karellen