Börn fædd 2021 fóru í heimsókn í Sívertsens-húsið í Hafnarfirði.
Rúta sótti okkur í leikskólann og gerði vettvangsferðina enn meira spennandi fyrir vikið.
Ferðin í Sívertsen-hús er skemmtileg viðburður hjá okkur fyrir jólin. Húsið er hluti af byggðarsafni og er elsta hús Hafnarfjarðar. Byggt á árunum 1803-1805 og var í eigu Bjarna Riddara Sívertsen og konu hans Rannveigar Filippusdóttur.
Í desember ár hvert er tekið á móti leikskólahópum og þeim boðið að fræðast um húsið, fólkið sem þar bjó og hvernig jólin voru í gamla daga. Á neðri hæðinni eru munir úr eigu hjónanna Bjarna og Rannveigar. Börnin fengu að sjá handsmíðað jólatré sem Bjarni gerði. Síðan fengu þau líka að þefa á epli sem í gamla daga voru bara til um jólin. Í lok heimsóknar kom svo óvæntur gestur sem allir könnuðust við og þar var hinn eini sanni jólasveinn - Ketkrókur.
Mikil ánægja var á meðal barnanna með þessa heimsókn og ekki síst þegar Ketkrókur gaf þeim kerti.
Við bakhlið hússins var skemmtilegt leiksvæði með víkingaskipi og gömul búð þar sem börnin nutu að leika sér áður en við fórum heim.
Hafnarfjörður er kominn í jólaskrúða og þessi aðventuferð var mjög spennandi og skemmtileg fyrir börnin. Svo auðvitað var ferðalagið með rútunni skemmtun í sjálfu sér.
myndir og nánari umfjöllun í tenglinum