Karellen
news

Leikskólakennara nemar

11. 03. 2026

Að þessu sinni óskuðu fjórir nemar eftir því að koma til okkar í vettvangsnáminu sínu við kennaradeild Háskóla Íslands.

Nemarnir eru að skoða hreyfingu barna og aðstæður til hreyfinga. Leik barna og tækifæri til leiks ásamt því að skoða vinnubrögð kennara og skipulag kennslu.

Það er alltaf svo frískandi að fá nema, heyra og sjá hvað verið er að leggja áherslu á í háskólasamfélaginu og sýna og kenna þeim okkar vinnubrögð.

© 2016 - 2026 Karellen