Karellen
news

Grillað yfir eldi

21. 01. 2021

Elstu börnin fóru í ævintýraferð í gær og var ferðinni heitið í lundinn okkar. Fyrsta verkefni var að finna heppilega grein til að nota til að grilla pylsu og svo kveiktum við lítinn varðeld í skóginum okkar. Það var svolítið kalt og ekki enn orðið bjart svo það var mjög notalegt að sitja við eldinn, grilla pylsur og ylja sér. Krummi rann fljótt á lyktina og kom og kítki á okkur og hefur vafalaust glaðst yfir einhverjum pylsubitum sem urðu eftir.

© 2016 - 2024 Karellen