Karellen
news

Jólakveðja

22. 12. 2021

Starfsfólk Lundabóls óskar ykkur öllum gleðilegra jóla og þakkar ánægjuleg samskipti á liðnu ári.

Það sem hefur einkennt þetta skrítna ár er traust, samvinna og hlýja á milli allra. Við höfum verið einstaklega heppin og ástandið í þjóðfélaginu hefur lítið haft áhrif á starfið.

Við erum þakklát og stolt af okkar einstaka foreldrahópi og gríðarlega ánægð með börnin okkar og hvernig þau eru að þroskast og dafna.

Starfið í leikskólanum ber þess merki að starfsfólkið sé ánægt og öll vinnan okkar skilar árangri, samskipti við foreldra góð og hvetur okkur til dáða.

Gildin okkar: gleði, samvinna og virðing eiga svo sannarlega við

Jólaknús frá okkur öllum

© 2016 - 2024 Karellen