Karellen
news

Ljóna- og Fuglahópur í listaskála

10. 02. 2020

Fugla- og Ljónahópur tóku hópastarfið saman í morgun og gerðu tilraun með vatnsmálningu, matarsóda og ediki.

Vatnsmálningunni og matarsódanum var blandað saman og málað á blað og síðan spreyjuðu krakkarnir ediki á blaðið til að sjá hvað myndi gerst.

Hjá flestum freyddi málningin þegar spreyjað var á blaðið.

Í lokin spreyjuðum við síðan ediki beint ofan í málningarboxin þar sem nóg var af matarsóda og vakti það mikla lukku, talað var um að þetta væri eins og eldgos.


© 2016 - 2024 Karellen