í vikunni eru börnin búin að föndra ýmislegt sem tengist hrekkjavökunni, meðal annars köngulær og drauga. Í dag var haldið upp á hrekkjavökuna og mættu börnin í fjölbreyttum og flottum búningum. Í hádegismat voru skrímslatásur með köngulóarsósu og á Laufinu var hrekkjavökuball og mikið glens og gaman :)