Karellen
news

Bollu-, sprengi- og öskudagur á Laufinu

19. 02. 2021

Í þessari viku var mikið glens og gaman og haldið upp á bollu-, sprengi- og öskudaginn. Á mánudaginn fengum við bollur í kaffitímanum og svo saltkjöt og baunasúpu í hádeginu á sprengidaginn. Í vikunni skreyttum við kassa sem notaður var sem tunna sem kötturinn var sleginn úr. Á öskudaginn mættu börnin síðan í búningum og var ball í salnum þar sem kötturinn (rúsinur) var sleginn úr tunnunni og vakti það mikla lukku meðal barnanna. :)

© 2016 - 2024 Karellen