Karellen
news

Listaverkagerð í lundinum okkar

23. 01. 2019

Duglegir krakkar í ævintýraferð í dag. Verkefni dagsins var að búa til snjóskúlptúr og lita hann svo með matarlit. Í lundinum okkar er því hægt að sjá nokkur eldfjöll, nammifjall og snjóskrímslið Lilla, sem er reyndar bara mjög krúttlegur.

Við tókum með okkur þoturassa og renndum okkur í miklum púðursnjó og enduðum fullkomna ferð á heitu kakói með sykurpúðum, auðvitað ;)

© 2016 - 2024 Karellen