Karellen
news

Heimsókn í Hofsstaðaskóla

02. 11. 2018

Í dag fóru 5 ára börnin í heimsókn í Hofsstaðaskóla þar sem þeim bauðst að taka þátt í sasmöng á salnum með 1. og 2. bekk. Við fengum líka að skoða verkgreinastofurnar sem var mjög gaman en heimilisfræðistofan vakti mikinn áhuga enda var verið að baka súkkulaðiköku þegar okkur bar að garði. Við kíktum líka inn í 1. bekkjar stofu og enduðum heimsóknina á bókasafninu þar sem Kristína bókasafnsfræðingur las bók fyrir börnin.

© 2016 - 2024 Karellen