Karellen
news

Geggjað leiksvæði

19. 11. 2020

Við erum svo lánsöm hér á Lundabóli því Garðabær var að útbúa svakalega flott leiksvæði við hliðina á leikskólanum okkar. Við fórum í vikunni sem leið og prufuðum kastalann sem er á svæðinu. Þetta er æðislegt leiktæki sem reynir á ýmsa færni. Jafnvægi, styrk, hugrekki og síðast en ekki síst þá er hann skemmtilegur. Það er kjarninn í lífi hvers barns, að hafa gaman. Við eigum svo eftir að prufa að fara með bolta út á fótboltavöllinn og taka nokkra leiki þar. Þetta er mjög flott viðbót við það útileiksvæði sem við höfum í garðinum okkar.

© 2016 - 2024 Karellen