Karellen
news

Brunavarnir

23. 06. 2020

Í eðlilegu árferði hefði slökkviliðið komið til okkar í heimsókn og farið yfir brunavarnir á heimilum og fleiru sem því tengist, en svo var ekki í ár.

En við fengum sent til okkar skemmtilegt efni sem við skoðuðum í dag og horfðum einnig á tvær stuttmyndir á youtube sem eru framleiddar sem fræðsluefni fyrir börn á leikskólaaldri. Allir höfðu gaman af og nú fara börnin galvösk heim og taka út brunavarnirnar í þeirra heimilum.

© 2016 - 2024 Karellen